ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni

Karlalið ÍBV í fótbolta vann 2-1 sigur á danska B-deildarliðinu Álaborg í æfingaleik á Spáni, þar sem liðið er statt í æfingaferð um þessar mundir. Sesar Örn Haraldsson skoraði fyrra mark Eyjamanna á 33. mínútu og Arnar Breki Gunnarsson það síðara tveimur mínútum síðar. Viggó Valgeirsson átti stoðsendingarnar í báðum mörkum ÍBV. Staðan var 2-0 […]
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra

Kostnaður við viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar árið 2025 nam 600,3 milljónum króna og var allur innan samnings, án aukaverka. Þetta kemur fram í svari G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, við fyrirspurn Eyjafrétta. Til samanburðar nam kostnaður við dýpkun árið 2024 um 529 milljónum króna á verðlagi þess árs. Samkvæmt eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar nam heildarkostnaður vegna viðhaldsdýpkunar á tímabilinu […]
Gamla myndin

Rauðagerði var reist að hluta til fyrir söfnunarfé er safnaðist í Vestmannaeyjasöfnun Rauða kross Íslands vegna eldgossins á Heimaey 1973. Fyrsta skóflustungan var tekin í mars 1974 en húsnæðið var tekið í notkun í maí 1974. Rauðagerði verður á næstunni rifið og á lóðinni eiga að rísa íbúðarhús. (meira…)
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn

Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn um helgina. Vestmannaey landaði á laugardagsmorgun og Bergey í gær. Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var hinn sáttasti. „Þetta gekk afar vel. Aflinn var mest fínasta ýsa og síðan var blanda af öðru með. Eitt […]
Þakklát fyrir traustið sem mér hefur verið sýnt

Þessa dagana er mikið um að vera í pólitíkinni. Hér í Eyjum eru flokkar farnir að setja sig í startholurnar að vinnu við framboð sín til kosninga og eðlilega margir bæjarbúar farnir að huga að því hvaða fólk ætli að gefa kost á sér í þessi mikilvægu störf. Eftir nokkra umhugsun hef ég tekið þá […]
Samþykktu rekstrarviðauka fyrir Náttúrustofu Suðurlands

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur samþykkt viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 vegna reksturs Náttúrustofu Suðurlands. Viðaukinn hljóðar upp á 5.399.000 krónur. Í breytingunni felst að framlag Vestmannaeyjabæjar til stofunnar lækkar um samtals 799 þúsund krónur. Jafnframt eru heimiluð kaup á tækjabúnaði að fjárhæð 4,6 milljónir króna umfram gildandi fjárhagsáætlun. Fram kemur að viðaukinn verði fjármagnaður með handbæru […]
Skoða byggingu sjúkrasundlaugar

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur falið sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna fýsileikakönnun á byggingu sjúkrasundlaugar sem hugsað er sem viðbyggingu við núverandi sundlaugasvæði. Jafnframt verður kostnaður við framkvæmdina metinn. Tillagan – sem lögð er fram af Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins – var áður tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar sem fól bæjarráði að útfæra framvindu könnunarinnar. […]