ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Eyjamenn fagna marki síðasta sumar. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í fótbolta vann 2-1 sigur á danska B-deildarliðinu Álaborg í æfingaleik á Spáni, þar sem liðið er statt í æfingaferð um þessar mundir.

Sesar Örn Haraldsson skoraði fyrra mark Eyjamanna á 33. mínútu og Arnar Breki Gunnarsson það síðara tveimur mínútum síðar. Viggó Valgeirsson átti stoðsendingarnar í báðum mörkum ÍBV. Staðan var 2-0 í hálfleik en Álaborg minnkaði muninn í síðari hálfleik. 

Sænskur framherji, að nafni Lucas,  var í byrjunarliði ÍBV í leiknum. Hann er á mála hjá sænsku meisturunum í Mjällby og er á reynslu hjá Eyjamönnum, ásamt tveimur leikmönnum, frá Spáni og Portúgal.

Áður en Eyjamenn héldu út léku þeir gegn FH, í annarri umferð Lengjubikarsins og endaði sá leikur 0-0.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.