Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn
Trollið tekið inn. Myndin er tekin um borð í Bergey VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu bæði fullfermi í heimahöfn um helgina. Vestmannaey landaði á laugardagsmorgun og Bergey í gær.

Rætt er við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, var hinn sáttasti. „Þetta gekk afar vel. Aflinn var mest fínasta ýsa og síðan var blanda af öðru með. Eitt hol var tekið á Pétursey og Vík og síðan var verið í hörkuveiði á Ingólfshöfðanum. Túrinn tók tvo og hálfan sólarhring höfn í höfn en það var einungis verið að veiðum í einn og hálfan. Þarna var fiskurinn í loðnu og það var mikið af loðnu að sjá. Nú styttist í virkilegt vertíðarfjör,” sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var einnig ánægður með aflabrögðin. „Við fengum aflann á Ingólfshöfðanum í fínasta veðri. Þetta var mest þorskur og ýsa en síðan fylgdu fleiri tegundir með í nokkrum mæli. Það var bara fínasti túr í alla staði,” sagði Jón. Vestmannaey hélt til veiða strax að lokinni löndun á laugardag en Bergey mun halda til veiða á miðvikudagskvöld, segir jafnframt í fréttinni.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.