Skoða byggingu sjúkrasundlaugar
Lagf.
Íþróttamiðstöðin í Eyjum.

Bæjarráð Vestmannaeyja hefur falið sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna fýsileikakönnun á byggingu sjúkrasundlaugar sem hugsað er sem viðbyggingu við núverandi sundlaugasvæði. Jafnframt verður kostnaður við framkvæmdina metinn.

Tillagan – sem lögð er fram af Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins – var áður tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar sem fól bæjarráði að útfæra framvindu könnunarinnar. Gert er ráð fyrir að könnunin byggi á greinargerð þar sem meðal annars verður horft til byggingarkostnaðar, rekstrar, mögulegra tekna og fjármögnunarleiða, auk þess sem eftirspurn og lýðheilsulegur ávinningur verða metin.

Í greinargerðinni kemur fram að lengi hafi verið rætt um þörf fyrir sjúkralaug í Vestmannaeyjum. Slík laug gæti bætt aðstöðu fyrir sundleikfimi, endurhæfingu og ungbarnasund, þar sem vatnið væri hlýrra og aðbúnaður betur sniðinn að þörfum þeirra sem þurfa á sértækri þjónustu að halda.

Einnig er bent á að sérstök laug gæti dregið úr álagi á núverandi sundlaug og bætt aðgengi almennings, auk þess að nýtast sem varalaug þegar loka þarf stóru lauginni vegna viðhalds eða framkvæmda.

Sund hefur um langt skeið gegnt mikilvægu hlutverki í íþrótta- og heilsulífi Vestmannaeyinga og á næsta ári verða 50 ár liðin frá opnun núverandi sundlaugar. Í tillögunni er því lýst að vel fari á því að hefja alvarlega skoðun á verkefninu á þeim tímamótum.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.