Eyjarnar lönduðu tvisvar fullfermi í síðustu viku

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu tvisvar fullfermi í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Bæði skipin komu til löndunar á mánudag og síðan aftur á fimmtudag. Þau héldu síðan á ný til veiða á föstudagskvöld. Heimasíða Síldarvinnslunnar heyrði hljóðið í Ragnari Waage Pálmasyni skipstjóra á Bergey. „ Það var hörkuveiði hjá báðum skipum í síðustu viku. Ég var þá að vísu í fríi en Snorri þór Guðmundsson var með skipið. Bæði skip voru að veiðum á Pétursey og aflinn var blandaður. Í fyrri túrnum var þetta ýsa, ufsi og þorskur en í seinni túrnum mest ýsa og ufsi. Í þessum túr fórum við austur að Ingólfshöfða en Vestmannaey hefur verið á Péturseynni áfram. Við lentum í bölvaðri brælu en höfum fengið góðan afla og erum á landleið. Hugsanlega munum við kasta á Péturseynni á landleiðinni til að fylla, við sjáum til,“ segir Ragnar Waage.

Nýjustu fréttir

Ófullnægjandi dýpi í Landeyjahöfn – uppfært
Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.