Ný verslun, Active opnaði í gær við Strandveg 45a, eða þar sem La Tienda var áður til húsa og Oddurinn fyrir þá sem muna enn lengra til baka. Eigendur verslunarinnar eru hjónin Karen Inga Ólafsdóttir og Sæþór Orri Guðjónsson en Karen hefur haldið úti vefverslun undir saman nafni í meira en eitt ár. Í Active er hægt að nálgast ýmsar hlífar og teip sem aðstoða við endurhæfingu eða meiðsli. Auk þess eru þar vöruflokkar Deadsea, húðkrem og fleira en vörurnar koma frá Ísreael og er Active með einkasölurétt á hvoru tveggja.