Hætta núverandi ferli og endurmeta stöðuna
ithrottam
Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Líkt og kom fram á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja þann 4. júní sl. var útboð vegna uppbyggingar og reksturs heilsuræktar við Íþróttamiðstöð kært til kærunefndar útboðsmála. Kærunefndin tók ákvörðun um að stöðva skyldi fyrirhugaða samningsgerð tímabundið á milli Vestmannaeyjabæjar, Lauga ehf. og Í toppformi ehf. skv. bréfi dags. 12. júní sl. á meðan málið er í ferli.

Fram kemur í fundargerð bæjarráðs að ráðið hafi átt fund með lögmanni um ákvörðun kærunefndar útboðsmála, viðbrögð og næstu skref. Ekki verður hægt að halda áfram með málið, þ.e. hefja samtal og í framhaldi gera samning, að svo stöddu. Til þess að svo sé hægt þarf að klára kæruferlið hjá nefndinni eða leita niðurstöðu dómstóla. Báðar leiðir myndu kosta sveitarfélagið mikla fjármuni og tefja uppbyggingu heilsuræktar í um 6-12 mánuði, jafnvel lengur. Þá mun það hafa áhrif á önnur uppbyggingaráform í tengslum við Íþróttamiðstöðina.

Í niðurstöðu segir að bæjarráð telji ekki forsvaranlegt gagnvart íbúum sveitarfélagsins að eyða fjármunum í að láta reyna á niðurstöðu nefndarinnar um tímabundna stöðvun, sérstaklega í ljósi þess að það mun taka allt of langan tíma með tilheyrandi töfum á uppbyggingu heilsuræktar við Íþróttamiðstöðina. Bæjarráð telur að rétt hafi verið staðið að auglýsingunni og vinnslu málsins þó að ráðið ætli ekki að láta á það reyna.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að hætta núverandi ferli og endurmeta stöðuna áður en næstu skref verða tekin. Bæjarráð er meðvitað um það að vinna þarf málið hratt og vel til þess að hægt sé að halda áfram með uppbyggingu heilsuræktar í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
Samgöngur – Bréf til forsætis- og innviðaráðherra
Úrslitakeppnin hjá stelpunum að hefjast
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.