Að mörgu að hyggja í undirbúningi þjóðhátíðar
Eyjafréttir litu við í Dalnum á sunnudaginn þegar undirbúningur þjóðhátíðar stóð sem hæst í frábæru veðri. �?arna voru gamalkunnug andlit, fólks sem komið hafa að undirbúningi og framkvæmd þjóðhátíðar í mörg ár og jafnvel áratugi. Fólk sem alltaf er tilbúið að leggja ÍBV �??íþróttafélagi lið – og þar áður annað hvort �?ór eða Tý, sem skiptust á að halda hátíðina fram til 1997 þegar þau sameinuðust undir nafni ÍBV. �?arna sáust líka nokkur ný andlit en það er eins og þetta gangi í ættir, því í festum tilfellum voru það krakkarnir sem fylgdu reynsluboltunum, foreldrum sínum.
Á þessu fólki byggir félagið og þeir skipta örugglega tugum ef ekki hundruðum, sjálfboðaliðarnir sem sjaldan koma fram en án þeirra yrði engin þjóðhátíð.
�?að er að mörgu að hyggja þó hefur þetta þróast og eftir að nýja sviðið var byggt með sjoppunum undir er allt einfaldara. En allt þarf að vera í lagi þegar gestir byrja að streyma í Dalinn á morgun. Ekki síst þar sem nú stefnir í stóra hátíð þar sem veðurguðirnir ætla að vera okkur hliðhollir þetta árið.

Nýjustu fréttir

Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Útboð Vestmannaeyjabæjar um heilsurækt aftur til kærunefndar
Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.