Erpur Snær Hansen, sviðsstjóri vistfræðisviðs Náttúrustofu Suðurlands segir algjört hrun í varpi lundans í ár. Lundinn hafi afrækt eggin þannig að innan við 20% pysja klaktist úr eggjunum. Afkoma þeirra fáu sem klöktust hefur einnig verið mjög léleg þannig að lítið bætist við stofninn í ár, minna en undanfarin ár. Svipaða sögu er að segja annars staðar á Suður- og Austurlandi en staðan er betri fyrir norðan. Lundaveiði fór fyrir ofan garð og neðan en lundaveiðitímabilið stóð yfir í fimm daga. Aðeins voru um 500 fuglar veiddir sem er dropi í hafið miðað við í venjulegu árferði.