Lögregla telur 16.000 manns hafa sótt þjóðhátíð Vestmannaeyja 2017 og er hátíðin með þeim stærstu sem haldin hefur verið. Í allt sinntu 25 lögreglumenn löggæslu á þremur lögreglubifreiðum auk 150 gæslumanna sem lúta stjórn lögreglu. Tveir sérsveitarmenn Ríkislögreglustjóra stóðu einnig vaktina. Sex óeinkennisklæddir lögreglumenn sinntu fíkniefnaeftirliti og höfðu sér til aðstoðar fíkniefnaleitarhunda. Starfandi læknir var í Dalnum auk heilbrigðisstarfsfólks, áfallateymis, barnaverndar og sjúkraflutningamanna og gengu allir sólarhringsvaktir.
�?etta kemur fram í samantekt lögreglu eftir þjóðhátíðina þar sem segir að umferð hafi gengið vel og hringtorg í Dalnum komið vel út og nokkuð vel gekk að aðgreina gangandi vegfarendur frá akandi. Á mánudag voru 17 teknir fyrir ölvunarakstur og akstur um 30 bíla stöðvaður á Landeyjarhafnarvegi í umferðareftirliti lögreglunnar á Suðurlandi.
Heildarfjöldi fíkniefnamála var 47 að þessu sinni, árið 2016 voru málin 30 og árið 2015 72 talsins. Grunur er um sölu- og dreifingu í um tveimur þessara mála. Lögregla er ánægð með árangurinn og hefur það sýnt sig að öflugt fíkniefnaeftirlit skilar árangri. Mest var haldlagt af hvítum efnum og óvenju lítið af öðru. Fíkniefnaleitarhundar eru ávallt notaðir við leit á þjóðhátíð og það kann að hafa áhrif á það hvaða efni fólk hefur meðferðis.
Átta líkamsárásir komu inn á borð lögreglu og þar af tvær alvarlegar þar sem um beinbrot í andliti er að ræða. Eitt heimilisofbeldismál kom upp og eitt brot gegn valdstjórn þar sem veist var að lögreglumanni. Tvö húsbrot, þrjú eignaspjöll, tveir þjófnaðir og sjö brot vegna ölvunar og óspekta.
�?rjú kynferðisbrot eru til rannsóknar hjá lögreglu eftir helgina enn sem komið er. Tilkynnt var um kynferðisbrot skömmu eftir miðnætti aðfaranætur laugardags á tjaldsvæði í Herjólfsdal. Aðilar þekkjast og var sakborningur handtekinn skömmu eftir tilkynningu til lögreglu. Kæra liggur ekki fyrir í málinu.
Eftir miðnætti aðfararnætur sunnudags var lögreglu tilkynnt um kynferðisbrot er á að hafa átt sér stað snemma morguns laugardag í heimahúsi. Aðilar þekkjast og var sakborningur handtekinn skömmu eftir tilkynningu til lögreglu. Kæra liggur fyrir í málinu.
Aðfaranótt sunnudags var lögreglu tilkynnt um kynferðisbrot á tjaldsvæði í Herjólfsdal. Aðilar þekkjast og var sakborningur handtekinn skömmu eftir tilkynningu til lögreglu. Kæra liggur ekki fyrir í málinu.
Lögregla sinnti fjölmörgum verkefnum yfir hátíðina og leysti vel úr öllum verkefnum sem komu inn á borð hennar. Að mati lögreglu gekk löggæsla vel. Viðbragð í sjúkraskýli, hjá áfallateymi og barnavernd var gott og var fjölmörgum sinnt vegna mismunandi erfiðleika. �?að er miður að upp hafi komið afbrot en áhersla var á vönduð og fagleg vinnubrögð vegna þeirra þar sem rannsóknarhagsmunir og hagsmunir brotaþola voru settir í forgang.