Sólarupprás og helgistund markaði páskadag í Eyjum
Hópur kom saman til að fylgjast með sólarupprás á páskadag.

Góð dagskrá var á vegum Landakirkju um páskana, þar sem íbúar komu saman til helgihalds og samveru.

Föstudaginn langa var lesið úr Passíusálmum, þar sem fólk kom saman í kyrrð og íhugun.

Á páskadagsmorgun safnaðist hópur fólks saman á Stórhöfða til að fylgjast með sólarupprás. Alls mættu 15 manns klukkan 06:27 og nutu stundarinnar þegar sólin reis á þessum hátíðisdegi. Við helgistundina las Viðar prestur úr ritningunni og að því loknu sögðu allir í kór: „Kristur er sannarlega upprisinn“, í samhljómi við boðskap páskahátíðarinnar. Messa var svo haldin í Landakirkju klukkan átta um morguninn og að henni lokinni var boðið upp á morgunverð í safnaðarheimilinu þar sem kirkjugestir gátu notið samveru í notalegu andrúmslofti.

Myndasyrpa frá Óskari Pétri fylgir fréttinni.

Nýjustu fréttir

Góð spá og lokaspretturinn hafinn fyrir Þjóðhátíð
Hafbotnsmælingum lokið – Komnir niður á 136 metra í Landeyjasandi
Flugmenn sviptir flugleyfi vegna lágflugs yfir Eyjum
Heildarafli dróst saman um 29 prósent í júní
Lögregla hættir rannsókn á andlátsmálinu á Hraunbúðum
Lóðaumsókn fyrir hvítu tjöldin hafin
Herjólfur kominn í viðgerðarstopp
Eyjakonur töpuðu gegn Þór/KA á Akureyri
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.