Í umhverfismálum byggjum við á mannréttindum umhverfismála, sjálfbærri þróun, að túlka vafa náttúrunni í hag og mengunarbótareglunni. Við viljum skila landinu í hendur óborinna kynslóða í betra ástandi en við tókum við því. Við viljum að börn okkar fái að njóta náttúruperlunnar �?jórsá eins og hún hefur verið allt frá landnámi. Við viljum eldfjalla- og þjóðgarð á Reykjanesi og öflugt alþjóðlegt fræðslu- og ferðamannasetur í tengslum við hann. Vatnajökulsþjóðgarður og verndun hálendisdýrgripa eru okkur hjartans mál.
Mannréttindi eru daglega brotin á konum, þær sæta kynbundnum launamun og kynbundnu ofbeldi sem eru alvarleg brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og friðhelgi einkalífs. Við höfum lagt fram raunhæfar tillögur til að konur njóti sömu réttinda og karlar. Við viljum einnig tryggja konum sem hafa verið heimavinnandi full lífeyrisréttindi til jafns við aðra landsmenn. �?að er einfalt mál að jafna lífeyrisréttindi þeirra með breyttum lögum og greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins.
Í öflugu velferðarsamfélagi á grunnþjónusta að vera gjaldfrjáls. Við viljum afnema gjaldtöku í skólakerfinu og leggja niður komugjöld í heilbrigðiskerfinu og tryggja jafnan aðgang að læknisþjónustu í heimabyggð. Síðast en ekki síst viljum við útrýma landlægri og vaxandi fátækt.
Jafn aðgangur að menntun hvarvetna á landinu er öflugasta tækið til að jafna kjör og vinna gegn mismunun og stéttaskiptingu. �?að eru samfélagslegar rekstrarforsendur fyrir framhaldsskóla í Rangárvallasýslu, háskóla-, frumkvöðla-, þekkingar- og menningasetrum á öllum þéttbýlissvæðum kjördæmisins. Nýheimar í Hornafirði eru gott dæmi um slíkt klasasetur, sem við viljum efla til muna og stofna ný hvarvetna í kjördæminu.
Sveitarfélög í Suðurkjördæmi hafa verið svelt fjárhagslega og geta trauðla sinnt félagslegum skyldum sínum. �?að er forgangsverkefni okkar að efla tekjustofna sveitarfélaga og tryggja þeim fjármagn til að sinna sómasamlega þeim verkefnum sem flutt hafa verið til þeirra frá ríkinu. �?að er óþolandi að öflug byggðarlög eins og t.d. Hornafjörður, Árborg og Vestmannaeyjar séu í fjársvelti vegna þess að ekki var rétt gefið fjárhagslega þegar verkefni voru færð frá ríki til þeirra og tekjustofnar um leið skertir.
Einsleit og metnaðarlaus álbræðslustefna ríkisstjórnarinnar og okurstarfsemi einokunarbankanna hefur drepið hátækni-, þekkingar- og frumkvöðlastarfsemi í dróma. Við ætlum að tryggja frumkvöðlum þolinmótt fjármagn til langs tíma á heilbrigðum vöxtum. Markmið okkar er að bæta kjör almennings og skapa hagstæð skilyrði til nýsköpunar og þróunar í atvinnulífi á landsbyggðinni. Við viljum styrkja og bæta umgjörð hefðbundinna atvinnugreina, landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar og hlúa að vaxtarsprotum í þessum atvinnugreinum sem öðrum.
Aðgengi að samfélaginu er forsenda þátttöku og þátttaka tryggir lýðræði. Við viljum auka þátttöku barna, kvenna, karla, innflytjenda, aldraðra og fatlaðra til að hafa áhrif á umhverfi sitt og lífskjör og láta til sín taka. Samgöngumál og fjarskiptamál eru forgangsverkefi okkar. �?að verður að losa Eyjamenn úr átthagafjötrum samgangna.
Í utanríkismálum er það forgangsverkefni okkar að afturkalla stuðning ríkisstjórnarinnar við Íraksstríðið, þann blóðuga hildarleik sem fyrst og síðast hefur bitnað á börnum og konum. Við viljum líka koma á fót alþjóðlegri friðarstofnun á Miðnesheiði.
�?að er grundvallaratriði í landsbyggðarstefnu VG að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til búsetu, eins og stjórnarskráin mælir fyrir um. Íbúar Suðurkjördæmis búa við mismunun í samgöngu-, heilbrigðis- og skólamálum, varðandi vöruverð og flutningskostnað, fjarskipti, banka- og póstþjónustu og ótal önnur réttindi og gæði, sem Íslendingar á suðvesturhorni landsins njóta. �?ví munum við breyta. Við látum ekki þröng gróðasjónarmið villa okkur sýn í samfélagsmálum.
Atli Gíslason skiptar 1. sæti VG í Suðurkjördæmi og Rannveig Sigurðardóttir er kosningastýra VG í Suðurkjördæmi.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst