Fullmótað Draumalið ÍBV B fyrir þjóðhátíð
Aron Pálmason, einn af okkar allra bestu í handboltanum til skoðunar hjá Gumma.

Draumaliðið hans Guðmundar Ásgeirs Grétarssonar, ÍBV B er óðum að taka á sig mynd og að venju er það stærstu nöfn handboltans sem eru í sigtinu. Vill Guðmundur Ásgeir vera búinn að binda sem flesta enda áður en hátíðin stóra, Þjóðhátíð Vestmannaeyja gengur í garð.

Þeir sem hann vill krækja fyrir ÍBV B í eru Róbert Aron Hoster Val, Smári Kristinn, Halldór Kristinn Harðarson frá Þór og Einar Örn Sindrason frá FH. Þá er ekki minni maður en Aron Pálmason, einn af okkar allra bestu í handboltanum til skoðunar hjá Gumma. Líka Egill Einarsson og Vignir Stefánsson frá Val. Ekki má gleyma Gísla Þorgeiri Kristjánssyni sem gæti komið að gagni hjá ÍBV B. Aðrir sem  koma til greina eru Brynjar Jökull Guðmundsson Víkingi og Guðni Ingvarsson Selfossi.

Eitthvað hefur slest upp á vinskapinn milli Gumma og Kalla Haralds en vonandi ná þeir sáttum á Þjóðhátíð.

 

 

Nýjustu fréttir

Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Skjöldur haldinn í þriðja sinn
Erlingur til GWD Minden – Bergvin tekur við sem aðalþjálfari ÍBV
Heimir fagnaði 3-0 sigri gegn Ísrael
Það sem vikan skilur eftir sig
Guðrún telur að stutt geti verið í kosningar
Lundaballið haldið í Höllinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.