„Tjaldbúarnir og þeir sem ætla á þjóðhátíð fara að koma. Traffíkin í dag hefur ekkert verið meiri en venjulega þar sem það hefur alltaf allt verið fullskipað frá því að höfnin opnaði,“ segir Sigmar Jónsson. Hann segir farið að bæta við ferðum á morgun en þá verða farnar átta ferðir. Farnar verði sex, sjö og átta ferðir á sólarhring yfir verslunarmannahelgina. Venjulega eru farnar fjórar ferðir mánudaga til miðvikudaga en fimm ferðir hina dagana.