KFS vann í dag Afríku en liðin áttust við á höfuðborgarsvæðinu í dag, lokatölur 6:1. Þetta er annar sigurleikur Eyjamanna í röð eftir slaka byrjun á Íslandsmótinu og bendir allt til þess að KFS sé komið á beinu brautina. Hjalti Kristjánsson, þjálfari KFS var einn varamanna liðsins í dag og kom inn á, 52 ára að aldri og hlýtur að vera einn elsti útileikmaður Íslandsmótsins í karlaknattspyrnu frá upphafi.