Handknattleiksdeild ÍBV hefur samið við Atla Stein Arnarson og mun hann ganga til liðs við ÍBV fyrir næstu leiktíð. ÍBV greindi frá tíðindunum á samfélagsmiðlum sínum fyrr í dag.
Í tilkynningunni segir ,,Atli er 22 ára rétthent skytta og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands og er því gríðarlega spennandi viðbót við hópinn”.
Atli kemur til ÍBV frá Gróttu, þar sem hann hefur leikið undanfarin tvö ár. Samningur hans við ÍBV gildir til ársins 2028.