Fróðleikur um Vestmannaeyjastreng

Landsnet birti rétt í þessu áhugavert myndband um rafmagnsstrengin til Vestmannaeyja og þær áskoranir sem eru fyrir hendi þegar kemur að viðgerð á strengnum. Ljóst er að ekki er um einfalt mál er að ræða þar sem strengurinn gæti verið á of litlu dýpi sem yrði til þess að fækja viðgerðina. Sjón er sögu ríkari. […]
Eyjafréttir komnar út – Fjölbreytt efni
Þriðja tölublað Eyjafrétta er komið út og er komið eða er á leiðinni til áskrifenda í Eyjum og á fastalandinu. Það er fjölbreytt að efni að vanda. Örlagadeginum, 23. janúar sl. þegar 50 ár voru frá upphafi Heimaeyjargossins er gerð góð skil í blaðinu. Athöfnin í Eldheimum er eftirminnileg þar sem forseti Íslands, forsætisráðherra og […]
Ný loðnuveiðiráðgjöf hækkar um 57.300 tonn

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022/23 verði ekki meiri en 275 705 tonn, sem þýðir 57 300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Ráðgjöfin byggir á samteknum niðurstöðum á mælingum á stærð veiðistofns í haustleiðangri (763 þús. tonn) og leiðangri sem fór fram dagana 23.-30. janúar (732 […]
Minningargrein: Magnús Guðjónsson

Ég er búin að þekkja Magnús Guðjónsson síðan ég man eftir mér. Hann ólst upp á Reykjum við Vestmannabraut í Eyjum. Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson og Bergþóra Jónsdóttir. Afi minn, Guðjón Jónsson frá Hlíðardal og Bergþóra móðir hans Magga voru systkini. Daglegur samgangur og mikil vinátta var á milli fjölskyldnanna í Hlíðardal og á […]
Tvær dagskrár framundan um helgina í Safnahúsinu
Þrátt fyrir að vetur konungur sé nú á hátindi veldis síns viljum við í Safnahúsinu halda ótrauð áfram með sýningar og dagskrár. Mikið verður því um að vera um komandi helgi. Handverkssýning á laugardaginn 3. febrúar kl. 16:00 í Einarsstofu Fjöldi hagleiksmanna og –kvenna er að finna hér í Vestmannaeyjum. Fyrir fáeinum árum auglýstum við […]
Andlát: Kolbrún Ingólfsdóttir
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma. Kolbrún Ingólfsdóttir, Stelkshólum 6, Reykjavík Lést 31. janúar á Landspítalanum Hringbraut. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu fimmtudaginn 9. febrúar klukkan 13:00. Birna Dögg Gränz – Sigurjón Valberg Carl Gränz – Guðrún Ósk Gunnarsdóttir Sonja Gränz Ólafsdóttir – Sigurður Ólafsson Barnabörn og langömmubarn. (meira…)
Skipting aflaheimilda á strandveiðum grundvallist á fjölda báta

Drög að frumvarpi um svæðisskiptingu strandveiða hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Matvælaráðuneytið kveðst hafa tekið tillit til framkominna athugasemda. „Fyrirhugað er að skipting aflaheimilda [milli strandveiðisvæða] grundvallist á fjölda báta sem skráður er á hvert svæði fyrir sig á hverju ári. Þannig verði þeim aflaheimildum sem eru til ráðstöfunar skipt jafnt enda sé jafnræði […]
Treysta á loforð Landsnets um varaafl
„Ég geri ráð fyrir m.v. yfirlýsingu eða fréttatilkynningu Landsnets um viðbrögð þá munum við fara í gegnum loðnuvertíðina,“ sagði Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins um þá viðkvæmu stöðu sem komin er upp í Vestmannaeyjum eftir að ljós kom að rafstrengurinn, VM 3 á milli lands og Eyja er bilaður úti í sjó. Landsnet talar um flókna […]
Þóra Björg með U19 til Portúgal
Þóra Björg Stefánsdóttir hefur verið valin í 20 manna hóp íslenska U19 ára landsliðsins sem heldur út til Portúgal á æfingamót þann 15. – 21. febrúar. Í leikmannahópnum eru margir öflugir leikmenn sem hafa leikið í efstu deild og verður gaman að fylgjast með liðinu etja kappi við Portúgal, Pólland og Wales. Þóra hefur leikið […]
Grímsey og Hrísey á leið til Vestmannaeyja
Landsnetu vinnur þessa stundina í því að flytja varaaflsvélarnar til Vestmannaeyja. Stöðvarnar sem bera nöfnin Grímsey og Hrísey voru í gær sóttar í Hrútatungu en þær eru nú á leið til Vestmannaeyja þar sem þær munu bætast í hóp þeirra varaaflsvéla sem þar eru. Varaaflið og Vestmannaeyjastrengur 1 munu sjá Eyjum fyrir rafmagni á meðan […]