Treysta á loforð Landsnets um varaafl

„Ég geri ráð fyrir m.v. yfirlýsingu eða fréttatilkynningu Landsnets um viðbrögð þá munum við fara í gegnum loðnuvertíðina,“ sagði Stefán Friðriksson, framkvæmdastjóri Ísfélagsins um þá viðkvæmu stöðu sem komin er upp í Vestmannaeyjum eftir að ljós kom að rafstrengurinn, VM 3 á milli lands og Eyja er bilaður úti í sjó. Landsnet talar um flókna og tímafreka viðgerð sem verður varla fyrr en næsta sumar.

Landsnet hefur lofað fleiri vararafstöðum en framundan er loðnuvertíð og þær vikur sem hún stendur er orkuþörfin mest í Eyjum.

„Við erum sjálfir nýbúnir að heyra þessar fréttir og erum að átta okkur á stöðunni,“ sagði Sindri Viðarsson, sem stýrir uppsjávarsviði Vinnslustöðvarinnar. „Samkvæmt okkar upplýsingum þá á að vera nægjanlegt rafmagn til að geta keyrt alla vinnslu en við fáum ekkert rafmagn á rafskautaketil fiskimjölsverksmiðjunnar. Þannig að öll gufuframleiðsla þarf að fara fram í olíukötlum sem er svo sem sama staða og var á síðustu loðnuvertíð. Þá voru skerðingar vegna lágrar stöðu í uppistöðulónum.

Þetta er mjög viðkvæm staða og má ekki mikið útaf bregða að allt sé stóra stopp og það þarf ekkert að velta því mikið fyrir sér hvert tjónið yrði fyrir starfsfólk, bæjarfélagið og fyrirtækin. Það er alveg ljóst að innviðirnir eru ekki nægjanlega sterkir og þar þarf að bæta úr.

Við höfum sjálf ekki komið okkur upp varaafli enda hefur okkur verið talin trú um að afhendingaröryggið eigi að vera gott en undanfarið höfum við verið að átta okkur á því að svo er kannski ekki og við erum að skoða þessa hluti,“ sagði Sindri.

Mynd: Loðnuveiðar eru hafnar og milljarðar í húfi að vel takist til.

 

Nýjustu fréttir

„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Hipsumhaps á Þjóðhátíð
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.