Ný loðnuveiðiráðgjöf hækkar um 57.300 tonn
Bjart framundan í loðnu en niðurskurður í þorski, ýsu og ufsa.

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2022/23 verði ekki meiri en 275 705 tonn, sem þýðir 57 300 tonna hækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 4. október 2022. Ráðgjöfin byggir á samteknum niðurstöðum á mælingum á stærð veiðistofns í haustleiðangri (763 þús. tonn) og leiðangri sem fór fram dagana 23.-30. janúar (732 þús. tonn).

Mælingarnar í janúar voru gerðar á skipum Hafrannsóknastofnunar, r/s Bjarna Sæmundssonar og r/s Árna Friðrikssonar ásamt loðnuskipunum Jónu Eðvalds SF, Heimaey VE og Ásgrími Halldórssyni SF. Aðstæður til mælinga voru þokkalegar þessa daga og náðist yfir allt fyrirfram ákveðið rannsóknasvæði ef undan er skilið vestasti hlutinn. Þar hamlaði hafís yfirferðinni.

Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 000 tonnum að teknu tilliti til afráns.

Smellið hér til að lesa nánar um ráðgjöfina.

Nýjustu fréttir

Eyjamenn geta aukið forskotið á Víking í kvöld
„Mig langar eiginlega bara að verða söngvari“
Sigurður Arnar kveður ÍBV og semur við Val
Trúnaður má ekki verða skjól fyrir þögn
Gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland og Faxaflóa
Þekkirðu leikarana? – Saga Leikfélags Vestmannaeyja lifnar við
Vinnslustöðin komin með um 11.000 tonn af síld
Um 70% foreldra sögðust finna mun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.