Gakktí Bæinn – Arkitektúr og byggingarsagan fyrir gos

Gakktí Bæinn er grafísk sögusýning sem fjallar um uppbyggingu og arkitektúr í Vestmannaeyjum fyrir Heimaeyjargosið 1973. Í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli sveitarfélagsins verður sýning á einföldum húsateikningum í grafískum stíl í Fiskiðjuhúsinu að Ægisgötu 2, laugardag og sunnudag sjötta til sjöunda júlí frá 13.00 til 17.00. „Sýningin verður upp sett með þeim hætti að […]
Hátíðin fór vel af stað

Goslokahátíðin fór vel af stað í gær með flottum viðburðum úti um allan bæ. Listamenn opnuðu sýningar sínar og bærinn fylltist af fólki. Óskar Pétur Friðriksson ljósmyndari Eyjafrétta kíkti við á opnanir í gær eins og myndirnar hér að neðan sýna. (meira…)
Traust og virðing er ekki sjálfgefin heldur áunnin

Síðasta vetur, þegar ljóst var í hvað stefndi með klofningsframboð, komu margir að máli við mig og minntust síðasta klofnings úr Sjálfstæðisflokknum í Eyjum. Það var árið 1994. Ég var 12 ára gömul og var þá fjarri því að spá nokkuð í stjórnmálum. Mér var sagt að reiðin og heiftin hefði verið mikil og enn […]
Myndlistarfélagið – Vestmannaeyjabær 100 ára

Í dag klukkan 16 verður opnuð athyglisverð sýning í sal Tónlistarskólans. Þar sýna félagar í Myndlistarfélagi Vestmannaeyja og kalla þau sýninguna „Vestmannaeyjabær 100 ára“ sem er vel við hæfi nú þegar við minnumst þess að 100 ár eru frá stofnun Vestmannaeyjakaupstaðar. Goslokasýningin er stærsti sýningarviðburður Myndlistarfélagsins ár hvert. Sýningarstjóri er Gunnar Júlíusson. Allir velkomnir og […]
Afmælishátíð á Skansinum

Á morgun, föstudag, hefst dagskrá á Skanssvæðinu með sýningu Leikhópsins Lottu á Litlu hafmeyjunni kl. 15:30. Sýningin tekur um eina klst. Í framhaldi af henni, eða kl. 16:30, hefst afmælishátíðin þar sem eftirfarandi flytja stutt ávörp: Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsáðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- sveitastjórnarráðherra, Eliza Reid forsetafrú, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóra, Arnar Sigurmundsson f.h. […]
Leikhópurinn Lotta á skansinum

Vakin er athygli á sýningu Leikhópsins Lottu á Litlu hafmeyjunni á morgun, föstudaginn 5. júlí, kl. 15:30 á Skanssvæðinu. Sýningin er í boði Ísfélagsins. Um er að ræða frábæra leiksýningu sem hefur notið vinsælda um land allt. Sýningin verður á Skanssvæðinu og í beinu framhaldi hefst 100 ára afmælishátíð Vestmannaeyjabæjar og setning Goslokahátíðar á svæðinu. Tónlist, […]
Sameinuð stöndum vér, – sundruð föllum vér

Ósamlyndi heftir framfarir og dregur úr lífsánægju. Því miður er því þannig varið nú um stundir að ósamlyndi og ósætti einkennir pólitíkina í Eyjum og meðal margra Eyjamanna. Svo að sumir gamlir vinir hafa slitið vinataugina, – sumir talast ekki við, aðrir geta ekki setið til borðs með fyrrverandi félögum sínum, eða tala illa um […]
Mitt á milli í Safnaðarheimilinu

Gíslína Dögg Bjarkadóttir, listakona tók stóra ákvörðun í vetur þegar hún ákvað að helga sig listinni eingöngu. Um leið sýndi Gíslína að hún er ekki kona einhöm því áður hafði hún breytt úr hefðbundna málverkinu yfir í grafík en viðfangsefnið er það sama, konan sem hefur verið áberandi í verkum hennar og myndir þar sem […]
Oddgeir & óperur

Í kvöld klukkan 20.30 verða Eyjakonurnar, Silja Elsabet Brynjarsdóttir óperusöngkona og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanónleikari með tónleika í stóra salnum í Hvítasunnukirkjunni sem þær kalla, Oddgeir og óperur. „Það er sjálf Töfraflautan eftir Mozart þar sem ég syng Þriðju dömu. Ég hlakka mikið til og það sama á við um tónleikana á fimmtudaginn. Ég […]
Sjaldan fellur eggið langt frá hænunni

Það er þekkt að gamalgrónir málshættir og orðtök vilja stundum skolast til af ýmsum ástæðum og jafnvel skrumskælast. Stundum skrensar fólk aðeins á tungunni en einnig er það þekkt að sumir gera út á það að afbaka málshætti á einhvern hátt. Þannig er það eflaust með hið gróna orðtak um eplið og eikina sem stundur […]