Mitt á milli í Safnaðarheimilinu

Gíslína Dögg Bjarkadóttir, listakona tók stóra ákvörðun í vetur þegar hún ákvað að helga sig listinni eingöngu. Um leið sýndi Gíslína að hún er ekki kona einhöm því áður hafði hún breytt úr hefðbundna málverkinu yfir í grafík en viðfangsefnið er það sama, konan sem hefur verið áberandi í verkum hennar og myndir þar sem hún leikur sér með mynstur. Gíslína verður með sýningu á verkum sínum í Safnaðarheimilinu um Goslokahelgina.

Sýninguna í Safnaðarheimilinu kallar hún „Mitt á milli“ og vísar ef til vill til þess að núna er Gíslína komin yfir í grafík auk þess að ætla að helga sig listinni eingöngu. „Ég hef verið í grafíkinni frá 2016 og vinn talsvert í  Reykjvík. Ég gekk í Íslenska grafíkfélagið sem er með æðislegt verkstæði í sama húsi og Listasafn Reykjavíkur sem ég hef aðgang að. Það er því miður búið að segja þeim upp húsnæðinu en vonandi finnst annað hentugt húsnæði.“

Gíslína tekur vinnutarnir í Reykjavík þar sem hún sækir líka námskeið auk þess að kynnast listafólki, bæði innlendu og erlendu sem skiptir svo miklu máli. „Mér finnst grafíklistin vera á uppleið og er mjög spennandi að taka þátt í því. Á verkstæðinu upplifir maður mismunandi strauma í listinni og það eru allir tilbúnir að segja manni til og leiðbeina. Þar myndast líka tengsl sem ég ætla að nýta mér í framtíðinni, bæði hér heima og erlendis. Ég vinn verkin með mismunandi tækni og í Eyjum hef ég t.d. nýtt mér Fablabstofuna hjá Frosta til að gera tréristur.“

Í janúar ákvað Gíslína að hætta hefðbundinni vinnu og helga sig listinni eingöngu og horfir hún björtum augum fram á við. „Þetta er draumurinn og ég er bjartsýn. Fyrsta stóra skrefið er sýningin í Safnaðarheimilinu sem er að hluta til sölusýning. Sýninguna kalla ég „Mitt á milli“ og þar verða 30 til 40 verk en það gæti breyst,“ segir Gíslína og skrefið er kannski ekki svo stórt þó hún hafi stigið yfir í grafíkina. „Það er alltaf konan sem er bakvið flest sem ég geri. Ég hef líkað skoðað verk Sigurðar Guðmundssonar, málara sem hannaði íslenska kvenbúningin. Í honum er mynstur sem ég leik mér með og geri að mínum,“ segir Gíslína sem á sér þann draum að koma sér upp vinnustofu í Eyjum.

„Ég er með ágætis aðstöðu heima en mig langar í sérstaka vinnustofu sem gæti verið aðdráttarafl fyrir aðra listamenn að nýta sér og dvelja hér um tíma. Fyrsta skrefið er grafíkpressa sem ég ætla að kaupa í haust. Mörg verkin á sýningunni vísa til þeirra fjölmörgu kvenna, sem í gegnum aldirnar hafa unnið sín mikilvægu störf í hljóði – þetta er óður til allra þeirra nafnlausu kvenna sem í raun sköpuðu söguna, listina og lífið. Þessar konur tengdu lífskeðju kynslóðanna saman, lifðu sem nafnlausar hversdagshetjur og eru gleymdar flestu fólki í dag.“ segir Gíslína sem vonast til að sjá sem flesta á sýningunni í Safnaðarheimilinu sem hún opnar kl. 18.30 á fimmtudaginn.

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.