Gakktí Bæinn - Arkitektúr og byggingarsagan fyrir gos

Gakktí Bæinn er grafísk sögusýning sem fjallar um uppbyggingu og arkitektúr í Vestmannaeyjum fyrir Heimaeyjargosið 1973. Í tilefni af 100 ára kaupstaðarafmæli sveitarfélagsins verður sýning á einföldum húsateikningum í grafískum stíl í Fiskiðjuhúsinu að Ægisgötu 2, laugardag og sunnudag sjötta til sjöunda júlí frá 13.00 til 17.00. „Sýningin verður upp sett með þeim hætti að gestir geta gengið um götur og hverfi þar sem fjallað er um arkitekta, byggingarstíla og götumyndir í Vestmannaeyjum,“ segir Kristinn Pálsson, arkítekt og Eyjamaður. „Mikill fjöldi veggspjalda verður til sýnis af byggðum og óbyggðum verkum misþekktra hönnuða ásamt einföldu og fræðandi lesefni. Sýningin er jafnframt hugsuð sem umræðuvettvangur þar sem gestir geta rætt áhrif byggingarlistar á mannlegt umhverfi og hvaða áhrif Heimaeyjargosið hefur haft á ásýnd sveitarfélagsins. Auk þess að sýna hve ábyrgðarmikið hlutverk það er að hanna umhverfið í kringum okkur.“ Sýningin er hugarfóstur Kristins sem hefur stundað nám í arkitektúr bæði hérlendis og í útlöndum. Hann þekkja margir sem fyrrverandi skopteiknara Morgunblaðsins og fyrrum starfsmann Vestmannaeyjabæjar, þar sem hann var meðal annars í undirbúningi Goslokahátíðar síðastliðin ár. Verkefnið er styrkt af Samtökum Sunnlenskra Sveitarfélaga og Vestmannaeyjabæ. Hljóta starfsmenn sveitarfélagsins og tengdir aðilar sem hafa aðstoðað þakkir. Sérstakar þakkir fær Pétur H. Ármannsson, arkitekt, hjá Minjastofnun Íslands.

Nýjustu fréttir

Bærinn krefst skýrra svara um NSL-4
Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.