Sameinuð stöndum vér, - sundruð föllum vér
Gísli Valtýsson

Ósamlyndi heftir framfarir og dregur úr lífsánægju. Því miður er því þannig varið nú um stundir að ósamlyndi og ósætti einkennir pólitíkina í Eyjum og meðal margra Eyjamanna. Svo að sumir gamlir vinir hafa slitið vinataugina, – sumir talast ekki við, aðrir geta ekki setið til borðs með fyrrverandi félögum sínum, eða tala illa um þá. – Þetta upplifi ég og eflaust margir aðrir Eyjamenn. Og kannski er ég ekki barnanna bestur.

Sjálfstæðisflokkurinn hafði afgerandi hreinan meirihluta í bæjarstjórninni á síðasta kjörtímabili. Hitt framboðið í Eyjum, Vestmannaeyjalistinn, virtist vinna í sátt og samlyndi við Sjálfstæðisflokkinn að hagsmunamálum Eyjanna, enda gekk vel í Eyjum og ánægjuvogin í Eyjum mældist hátt.

Svo komu nýjar kosningar og nýtt framboð sem spratt uppúr ósætti innan Sjálfstæðisflokksins. Þótt ný framboð séu algeng á Íslandi og í sjálfu sér eðlileg í lýðræðissamfélagi, – varð þetta nýja framboð, sem kallaði sig Heimaeyjar-listann, – rótin að miklu sundurlyndi, sem bitnað hefur á bæjarstemmningunni, hagsmunum Eyjanna og fólkinu í Eyjum.

Án þess að ég ætli að greina ástæðuna þá virðist sem stífni innan fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins, að vilja ekki prófkjör fyrir bæjarstjórnarkosningarnar hafa endanlega klofið flokkinn, þótt eflaust fleira komi til. –

– Nýr meirihluti Heimaeyjar-listans og Eyja-listans var myndaður í Eyjum eftir kosningarnar, en Sjálfstæðisflokkurinn fór í minnihluta.

Og þar með varð „andskotinn laus“. Í stað samlyndu bæjarstjórnarinnar á síðasta kjörtímabili eru mál innan núverandi bæjarstjórnar oftast afgreidd í ágreiningi og sparðatíningi. Meira að segja stjórn félagsins utan um Herjólf er orðin þrætuepli meiri- og minnihlutans og ekki útséð hvernig því félagi á eftir að reiða af með þeim stjórnarháttum, sem nú viðgangast.

Þið bæjarfulltrúarnir okkar og við íbúarnir, hvar í flokki sem við stöndum, tökum höndum saman um að hafa hagsmuni Vestmannaeyja að leiðarljósi, – alltaf – umfram pólitíska hagsmuni eða persónulegt ósætti. – Svona í tilefni af 100 ára afmæli kaupstaðarins.

Þótt Vestmannaeyjar teljist ekki til brothættra byggða, þá þurfa Eyjarnar fyrst og fremst á samstöðu okkar íbúanna að halda, til að okkur farnist vel.

Sameinuð stöndum vér – en sundruð föllum vér.

Gísli Valtýsson

 

 

Nýjustu fréttir

Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.