Bæjarráð Fjarðarbyggðar lýsti yfir á fundi sínum í dag stuðningi við baráttu Vestmannaeyinga gegn fyrirhugaðri lokun skurðdeildar Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. „…en íbúar Fjarðabyggðar þekkja vel þá baráttu sem heyja þarf til að verja grunnþjónustu í heimabyggð,“ eins og segir í bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar.