Samgöngumál voru tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja á fimmtudag. Bæjarstjórn lýsir yfir miklum áhyggjum af samgöngum á sjó á komandi vetri. „Enn eitt árið stendur til að sigla í sömu höfnina á sama skipinu yfir sama veður- og hafsvæðið. Niðurstaðan verður því væntanlega sú sama og verið hefur. Jafnvel þótt nú líti út fyrir að byrjunarörðugleikar vegna hafnarinnar sjálfrar -og þá sérstaklega það sem snýr að sandburði- verði minni en áður, hafa litlar breytingar verið gerðar að öðru leyti,“ segir í bókun bæjarstjórnar.