KFS komst nú í morgun í 2. sæti B-riðils 3. deildar karla eftir 5:3 sigur á Ægi frá Þorlákshöfn. Leikurinn fór fram á Týsvellinum og tafðis um 45 mínútur þar sem Ægismenn töfðust á ferð sinni í gegnum Landeyjahöfn og til Eyja. En það var engu líkara en það væru Eyjamenn sem ekki mættu til leiks því Ægismenn komust í 0:2 eftir aðeins 18 mínútna leik eftir skrautlegan varnarleik KFS-liðsins.