Byggðasafn Vestmannaeyja safnar frásögnum ykkar. Goslokahelgina hefst söfnun á frásögnum ykkar um bátsferðina frá Vestmannaeyjum gosnóttina 1973. Í hvaða bát varstu? Á hvaða aldri varstu? Hverjir voru samferða þér? Hvernig var upplifunin? Hvað fór í gegnum huga þinn? Þessi söfnun frásagna heldur áfram eftir goslokahelgi og mun taka nokkurn tíma.