Bifreið sem stóð við Gerðisbraut, rann af stað og endaði á girðingu við hús á Helgafellsbraut. Engin slys urðu á fólki en skemmdir urðu á bílnum og grindverkinu. Helgafellsbrautin er afar brött og ef bifreiðin hefði farið lengra niður götuna, hefði hún fljótt náð miklum hraða og skapað enn meiri hættu. Það var því lán í óláni að ekki fór verr.