Það var frekar rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og fór skemmtanahald helgarinnar ágætlega fram.
Aðfaranótt 20. júní sl. var lögreglu tilkynnt um að ölvaður maður hafi slegið í vélarhlíf bifreiðar sem stóð fyrir utan skemmtistaðinn Höllina. Ekki reyndist unnt að tala manninn til og endaði hann í fangageymslu lögreglu þar sem hann fékk að sofa úr sér vímuna.