ÍBV skrifar undir tveggja ára samning í dag við framherjann Bjarna Gunnarsson. Hann er fæddur árið 1993 og er uppalinn hjá Fjölni þar sem hann spilaði 57 leiki með meistaraflokki og skoraði í þeim átta mörk. Hann hefur spilað bæði með U-17 og U-19 ára landsliðunum og skorað fimm mörk í sextán leikjum.