Björgun gat ekki mannað dýpkunarskip

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í síðustu viku. Ríkisstyrktu vetrarflugi til Vestmannaeyja var hætt í lok mars. Samkvæmt Vegagerðinni var ekki fjármagn til að halda því áfram. Bæjarráð og bæjarstjórn hafa ítrekað mikilvægi þess að flugið yrði út apríl þar sem dýpið fyrir Herjólf er ekki fullnægjandi á rifinu og þarf að treysta á litla ölduhæð til að halda fullri áætlun.

Dýpkun hefur ekki verið sinnt sem skyldi yfir páskana þótt það hafi verið góður veðurgluggi. Vegagerðin gaf þá skýringu að Björgun hefði ekki geta mannað skipið og því ekki hægt að sinna dýpkun þótt veður væri til þess. Dýpið á rifinu er hamlandi fyrir siglingar og því algerlega ótækt að ekki séu allir veðurgluggar nýttir. Bæjarstjóri kom þessum athugasemdum á framfæri við fulltrúa Vegagerðarinnar um helgina.

Bæjarráð telur í niðurstöðu sinni um málið óásættanlegt að Björgun uppfylli ekki samning um dýpkun með þeim hætti sem gert var um helgina og fer fram á það við Vegagerðina að hún grípi til aðgerða gagnvart félaginu vegna vanefnda á samningi.

Nýjustu fréttir

Álfsnes úr leik vegna bilunar
Trausti opnar kosningaskrifstofu í gamla TM Húsinu
Strangar kröfur í útboði heilsuræktar vekja ágreining í bæjarstjórn
Davíð Oddsson fallinn frá
ÍBV strákarnir urðu einnig Powerade bikarmeistarar í 3. flokki
Dýpið mælt í Landeyjahöfn
ÍBV Powerade bikarmeistari í 3. flokki kvenna
Mars heilsar með frosti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.