Georg Eiður – Áramót 2023 og 2024

Árrið 2023 byrjaði með mikilli kuldatíð hér í Eyjum þar sem allt fór á kaf í snjó, og í sjálfu sér hefði ég eiginlega frekar viljað það heldur en þennan klaka sem er hérna núna, en þetta stóð nú stutt yfir. Vertíðin var eins og árið allt, allt fullt af fiski, vantar bara aflaheimildir. Lundinn […]

Að HS Veitur ljúki sínum skyldum hratt og vel

Skemmd vatnslögn_minni

Bæjarráð ræddi á síðasta fundi sínum samskipti milli HS Veitna og Vestmannaeyjabæjar vegna viðbragða við skemmdum á neysluvatnslögninni. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir strax næsta sumar sem byggðar eru á ráðleggingum sérfæðinga til að tryggja lögnina. Ekki fjárhagslega forsvaranleg framkvæmd fyrir fyrirtækið Í bréfi Páls Erland, forstjóra HS Veitna segir m.a. að haustið 2022 hafi […]

Tjaldurinn í Gvendarhúsi

Sigurgeir Jónsson: Tjaldurinn í Gvendarhúsi: Tveir myndarlegir ungar komust á legg þetta sumarið Þeir eru fremur stundvísir, tjaldarnir sem gert hafa sig heimakomna í nágrenninu við okkur í Gvendarhúsi á undanförnum árum. Í fyrra mættu þeir þann 29. mars, á afmælisdaginn hennar Katrínar, en í ár komu þeir degi fyrr, sennilega til að missa ekki […]

Áramót 2023-24

gea_opf

Árið 2023 byrjaði með mikilli kuldatíð hér í Eyjum þar sem allt fór á kaf í snjó, og í sjálfu sér hefði ég eiginlega frekar viljað það heldur en þennan klaka sem er hérna núna, en þetta stóð nú stutt yfir. Vertíðin var eins og árið allt, allt fullt af fiski, vantar bara aflaheimildir. Lundinn […]

Nýárskveðja

HBH-0990

Nýja árið heilsar með kulda en fallegu veðri. Það sést vel á fyrsta myndbandi ársins frá Halldóri B. Halldórssyni. (meira…)

Gleðilegt nýtt ár

Vestmannaeyingar kvöddu gamla árið með mikilli skothríð flugelda sem lýstu upp himininn yfir Heimaey allt gamlárskvöldið og langt fram eftir nóttu. Veður var gott, bjart og aðeins gola sem náði að hreinsa loft af reyknum sem fylgdi rakettunum. Brenna var að venju við Hástein með mikilli flugeldasýningu. Þar tók Addi í London þessa skemmtilegu mynd. […]

Gamla árið sprengt upp – myndir

Árið var sprengt upp með miklum hávaða í gærkvöldi. Óskar Pétur Friðriksson, fylgdist með sprengingunum í gegnum linsuna. Hann segir að hann hafi aldrei áður séð annað eins. Veðrið var hægt og bjart þannig að hávaðinn var ótrúlega mikill. Þar sem vindur var með minnsta móti urðu loftgæðin mjög léleg er leið á. Eyjafólk gengur […]

Áfram siglt á háflóði

herjo_03_2023_landeyjaho

Herjólfur ohf. hefur gefið út áætlun á morgun, 2.janúar 2024. Siglt verður til Landeyjahafnar þrjár ferðir á háflóði skv. eftirfarandi áætlun: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00, 09:30, 19:30 (Áður ferð kl. 17:00) Brottför frá Landeyjahöfn kl. 08:15, 10:45, 20:45. Afgreiðsla Herjólfs opnar aftur í dag kl. 19:15 og verður símsvörun til kl. 21:00. Hvað varðar […]

Rúmlega 1300 þúsund söfnuðust

„Mig langar að þakka fyrirtækjunum hér í Eyjum og þeim sem tóku þátt í gamlársgöngu og hlaupinu fyrir stuðninginn,“ segir Hafdís Kristjánsdóttir sem kom hlaupinu af stað eftir Kóf og brjálað  veður í fyrra. Hlaupið – gangan var árlegur viðburður á gamlársdag fram að kófi og tóku um 100 manns þátt árið 2019 en nú […]

Verðandi fagnaði 85 ára afmæli

„Skipstjóra og stýrimannafélagið Verðandi í Vestmannaeyjum hélt upp á 85 ára afmæli sitt í Höllinni í Eyjum í gærkvöldi. Það var flott veisla, frábær matur hjá Einsa kalda, eins og skemmtiatriðin og veislustjórn Gísla Einarssonar,“ segir Ásmundur Friðriksson, alþingismaður á Fésbókarsíðu sinni í dag. „Ég man vel þegar pabbi, Friðrik Ásmundsson var formaður þessa félags […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.