Borgarafundur 20. maí vegna sveitarstjórnarkosninga
Suðurland FM �?? �?tvarp Suðurlands verður á faraldsfæti í maí og mun standa fyrir opnum borgarafundum og verða með framboðsfundi í beinni útsendingu síðustu tvær vikurnar fyrir kosningar. Alls verða fundirnir sex talsins og verður útvarpað beint frá hverju bæjarfélagi þann dag sem fundurinn er. Rætt verður við forystumenn flokkanna og farið yfir þau mál sem helst brenna á heimamönnum.
Borgarafundurinn í Eyjum verður 20. maí næstkomandi en fundarstjóri verður Valdimar Bragason og mun hann njóta aðstoðar eins heimamanns á hverjum stað. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er áætlaður fundartími tveir klukkutímar. �??Fólk er hvatt til að mæta á fundinn í sínu bæjarfélagi. �?ar gefst fólki tækifæri á að spyrja frambjóðendur spurninga, skemmtiatriði verða á milli fundarliða og léttar kaffiveitingar seldar á staðnum. Fyrir þá sem ekki komast verður allur fundurinn í beinni útsendingu á FM 96,3 og 93,3 í Vestmannaeyjum og Rangárvallasýslu. Einnig er hægt að hlusta á netinu á heimasíðu útvarpsins www.sudurlandfm.is
Sem fyrr segir ætlar Suðurland FM að vera í beinni útsendingu frá hverju bæjarfélagi þann dag sem fundurinn er. Dagskrárgerðarmenn stöðvarinnar verða með puttann á púlsinum um hvað er að gerast í bæjarfélaginu og spjalla við heimamenn um allt milli himins og jarðar,�?? segir í fréttatilkynningu frá Suðurland FM.

Nýjustu fréttir

Árni Árnason – Þurrabúðarlíf í Eyjum um aldamótin 1900
34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð í fyrra
Safna fyrir innileikvelli fyrir börn 
85 ára saga Rauða krossins í Eyjum – opið hús í Arnardrangi á sunnudag
Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.