Í dag, föstudag kl. 17.00 hefst hafnarganga – bryggjurölt undir leiðsögn Arnars Sigurmundssonar, formanns framkvæmda- og hafnarráðs. Tilefnið er að í þessum mánuði er 100 ára afmæli sérstakra laga um Vestmannaeyjahöfn. Voru þau samþykkt á Alþingi í júlí 1913.