Allt stefnir í að Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaðurinn sterki í ÍBV, sé á leiðinni frá félaginu. Á mbl.is er sagt frá því að Brynjar Gauti sé á leið til Danmerkur þar sem hann mun æfa og spila æfingaleik með danska úrvalsdeildarliðinu Silkeborg. �??Maður hafði heyrt af áhuga víða á norðurlöndunum en Silkeborg kom inn í myndina eftir leikina með U21-landsliðinu gegn Dönum,�?? sagði Brynjar Gauti í samtali við mbl.is. �??�?g tel mig fullkomlega kláran til þess að fara út og það er rökrétt skref á mínum ferli, til að halda áfram að bæta mig og ná lengra.�?? sagði Brynjar Gauti.
Brynjar Gauti Guðjónsson er 22 ára gamall og hefur leikið með ÍBV síðan sumarið 2011 en hann kom til liðsins frá Víkingi �?lafsvík. Brynjar hefur verið lykilmaður í liði ÍBV og lék 24 leiki í deild og bikar síðasta sumar og skoraði í þeim þrjú mörk. Allt stefnir í að varnarlína ÍBV verði mikið breytt næsta sumar. �?annig er óvíst hvenær Matt Garner verði leikfær á ný eftir að hafa fótbrotnað í haust en ólíklegt er að hann verði tilbúinn í byrjun tímabils. �?á fór Eiður Aron Sigurbjörnsson frá ÍBV á miðju sumri og nú er Brynjar Gauti á leið frá félaginu. Jökull Elísabetarson var lengi vel í hægri bakverðinum en hann er nú farinn frá félaginu.