Veðurstofa Íslands varar við stormi í dag, mánudag. Búist er við 18 til 23 metra meðalvindi á sekúndu við ströndina og slyddu eða snjókomu með köflum. Á morgun er svo búist við austlægari vindi, áfram hvassviðri, rigningu eða slyddu af og til en hiti 0-5 stig að deginum. Klukkan 7:00 í morgun var 17 metra meðalvindhraði á Stórhöfða, hiti 3,2 stig og rigning.