Byggt í Eyjum sem aldrei fyrr og fólki fjölgar
Eitt húsanna sem rís við Goðahraun.

Á árunum 2015 til 2024 hafa framkvæmdir og útgáfa byggingarleyfa í Vestmannaeyjum verið tiltölulega stöðugar. Megináherslan hefur verið á íbúðarhúsnæði, en árið 2024 sást aukning í leyfum fyrir atvinnuhúsnæði. Endurbyggingar og stækkun eldri mannvirkja hafa farið fram jafnt og þétt, sem endurspeglar reglubundið viðhald og áframhaldandi nýtingu húsnæðis.

Fullbúnum íbúðum hefur fjölgað um tugi, jafnvel hundruð á tímabilinu, og var mikill kraftur í uppbyggingu frá 2019. Á síðasta og yfirstandandi ári hafa um 40 íbúðir verið afhentar, sem er langt frá því að mæta eftirspurn. Í byggingu eru fjölbýlishús með um 40 íbúðum sem gætu klárast á þessu og næstu tveimur árum. Þá er hafið að grafa fyrir 26 íbúða húsi með bílakjallara við Áshamar.

Í fyrra birti HMS skýrslu sem Vestmannaeyjabær staðfesti að væri í samræmi við íbúðaþörf. Þar kom fram að 56 íbúðir væru í byggingu á þeim tíma, og nokkrar þeirra eru enn ókláraðar. Síðan hafa bæst við tíu íbúðir við Tangagötu, auk þess sem fleiri verkefni eru á teikniborðinu. Ljóst er að áætlun bæjarins um íbúðaframboð hefur ekki staðist undanfarin ár, og að bregðast þarf við til að mæta fjölgun íbúa.

Samkvæmt spám HMS fjölgar íbúum í Vestmannaeyjum um 420 á næstu fimm árum, eða um 84 á ári. Endurskoðuð húsnæðisáætlun gerir ráð fyrir að byggja þurfi 34 íbúðir árlega. Þegar litið er á stöðuna nú þegar fyrri hluti ársins 2025 er að ganga í garð, er því rétt að meta hvort framboðið standist þetta markmið.

 

Eitt þrigga húsa sem rís við Goðahraun.

Staða framkvæmda

Fullbúið / í byggingu (fjöldi íbúða):

  • Hvítingavegur 7 – í byggingu (1)
  • Áshamar 83–38 – fullbyggt (4)
  • Áshamar 87–89 – fullbyggt (4)
  • Áshamar 125–133 – fullbyggt (5)
  • Sólhlíð 4 – í byggingu (20)
  • Heiðarvegur 12 – fullbyggt (10)
  • Goðahraun 13 – í byggingu (1)
  • Goðahraun 14 – fullbyggt (1)
  • Goðahraun 16 – fullbyggt (1)
  • Suðurgerði 10 – fullbyggt (1)
  • Suðurgerði 11 – í byggingu (1)
  • Stóragerði 4 – í byggingu (1)
  • Kirkjuvegur 29 – í byggingu (1)
  • Búhamar 30 – í byggingu (1)
  • Búhamar 37 – fullbyggt (1)
  • Tangagata – í byggingu (10)
  • Vesturvegur – í byggingu (6)
  • Áshamar – í byggingu (26)

Af þessari 101 íbúð eru á milli 30 og 40 fullkláraðar.

 

Þetta myndarlega hús við Goðahraun sker sig úr en er mjög áhugavert að sjá.

 

Fólksfjölgun umfram spár

Fólksfjölgunin síðustu ár hefur verið mun meiri en spár gerðu ráð fyrir:

  • 2020–2021: +86
  • 2021–2022: +109
  • 2022–2023: +109
  • 2023–2024: +87

Að meðaltali hefur fjölgað um 97,75 íbúa á ári síðustu fjögur ár, sem er talsvert umfram spár. Ef þessi þróun heldur áfram má búast við að eftirspurn eftir íbúðum verði meiri en framboð árin 2025, 2026 og líklega 2027.

Atvinnuhúsnæði og fjölgun starfa

Bygging atvinnuhúsnæðis hefur tekið mikinn kipp. Stærstu framkvæmdirnar eru hjá Laxey, bæði við Friðarhöfn og í Viðlagafjöru þar sem fyrstu laxarnir voru slátraðir í upphafi mánaðar. Um 100 manns starfa við uppbygginguna og tugur nýrra starfa skapast þegar starfsemin verður komin í fullan rekstur.

Ísfélag og Vinnslustöðin hafa einnig fjárfest fyrir milljarða í húsum og búnaði síðustu ár.

 

Nýjustu fréttir

Skólamál og ábyrgð í opinberri umræðu
Eyjamenn með stórsigur í Suðurlandsslagnum
Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.