Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri
Frá aðgerðunum í dag. Ljósmynd/Björgunarfélag Vestmannaeyja.

Töluvert annríki var hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í dag, þegar fárviðri gekk yfir Vestmannaeyjar með hvössum vindhviðum og krefjandi aðstæðum. Raunar stendur stormurinn enn en aðeins hefur lægt ef skoðuð er nýjasta veðurathugunin á Stórhöfða.

Björgunarfélagið var fyrst kallað út um hádegi og hafði sinnt níu verkefnum þegar þetta var skrifað um kl. 18. Verkefnin tengdust meðal annars lausum þakplötum, þakkössum, klæðningum og öðru sem losnað hafði í veðrinu.

Alls komu 22 félagar að aðgerðunum, í samstarfi við lögreglu, en útköll stóðu yfir frá hádegi og fram á kvöld. Í tilkynningu frá félaginu er íbúum bent á mikilvægi þess að ganga vel frá lausamunum þegar von er á hvassviðri og fylgjast með veðurspám, enda megi með slíku draga úr hættu og tjóni. Þá er öllum sem komu að aðgerðum dagsins þakkað fyrir gott samstarf.

Veðurathuganir – Stórhöfði

Tími Vindur Mesti vindur / hviða Hiti Uppsöfnuð úrkoma Raka-
stig
Mán 06.04
kl. 18:00
Aust-suð-austan 31 m/s 36 m/s  /  45 m/s 5,7 °C 0,4 mm / 1 klst 96 %
Mán 06.04
kl. 17:00
Aust-suð-austan 37 m/s 38 m/s  /  47 m/s 4 °C 2,2 mm / 1 klst 96 %
Mán 06.04
kl. 16:00
Aust-suð-austan 35 m/s 40 m/s  /  49 m/s 3,5 °C 6,6 mm / 1 klst 98 %
Mán 06.04
kl. 15:00
Aust-suð-austan 37 m/s 38 m/s  /  49 m/s 2,8 °C 6,8 mm / 1 klst 98 %
Mán 06.04
kl. 14:00
Austan 37 m/s 39 m/s  /  49 m/s 2,6 °C 6,6 mm / 1 klst 98 %
Mán 06.04
kl. 13:00
Aust-suð-austan 39 m/s 41 m/s  /  49 m/s 2,3 °C 3,1 mm / 1 klst 98 %
Mán 06.04
kl. 12:00
Aust-suð-austan 38 m/s 38 m/s  /  49 m/s 2,4 °C 1,3 mm / 1 klst 97 %

Nýjustu fréttir

ESB-aðild gæti fært störf og verðmæti úr landi að mati SFS
Eyjakonur geta endurheimt þriðja sætið
Færri íbúðir og minna byggingarmagn við Strandveg 44
Bergey með fínasta karfa
Tilkynntur til barnaverndar eftir mynd af feðgum á veiðum
Norconsult metur fýsileika og kostnað við Eyjagöng
Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.