Rafmagnslaust: Stór truflun í kerfinu – uppfært

Rafmagn fór af í Vestmannaeyjum og víðar klukkan 20.00. Fram kemur á í tilkynningu frá stjórnstöð Landsnets að stór truflun hafi orðið í kerfinu, niðurkeyrsla á stóriðju og fl. Þá segir að landskerfið hafi splittatst í tvær eyjur og að tíðnin hafi farið í 53.5hz. Fram kemur að frekari upplýsingar komi síðar. Hluti bæjarins fékk […]
Annríki hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í fárviðri

Töluvert annríki var hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja í dag, þegar fárviðri gekk yfir Vestmannaeyjar með hvössum vindhviðum og krefjandi aðstæðum. Raunar stendur stormurinn enn en aðeins hefur lægt ef skoðuð er nýjasta veðurathugunin á Stórhöfða. Björgunarfélagið var fyrst kallað út um hádegi og hafði sinnt níu verkefnum þegar þetta var skrifað um kl. 18. Verkefnin tengdust […]
Hjalti læknir og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025

Hjónin Hjalti Kristjánsson læknir og Vera Björk Einarsdóttir hjúkrunarfræðingur hlutu Fréttapýramídann sem Eyjafólk ársins 2025 og eru meira en vel að því komin. Saga Hjalta Kristjánssonar læknis og Veru Bjarkar Einarsdóttur hjúkrunarfræðings er samofin Vestmannaeyjum og samfélaginu. Frá fyrstu kynnum Hjalta af Eyjum skömmu eftir gos til þess að hjónin settust hér að hafa þau […]
Stormur á Stórhöfða

Í morgun tók gildi gul viðvörun á sunnanverðu landinu. Klukkan 12 á hádegi tekur svo gildi appelsínugul viðvörun á Suðurlandi og gildir sú viðvörun til klukkan 20.00 í kvöld. Klukkan 11.00 var komið fárviðri á Stórhöfða og mældist stöðugur vindur upp á 35 m/s. Hviður fóru allt upp í 45 m/s. Í Vestmannaeyjabæ mældist á […]
Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu

Í Vestmannaeyjum er urmull af verslunum, veitingastöðum, hárgreiðslustofum og annarri þjónustu sem sterkt bæjarfélag þarf. Það vakti furðu mína þegar að ég flutti hingað fyrir rúmum 10 árum að sáralítið af einhverskonar keðjum ofan af landi eru hér. Skyndibitinn sem er í boði er ekki vörumerki frá Bandaríkjunum eða Reykjavík, heldur eru þetta lítil fjölskyldufyrirtæki […]