Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Ljósmynd/aðsend.

Aðsend grein

Ágúst Erling Kristjánsson

​Í Vestmannaeyjum er urmull af verslunum, veitingastöðum, hárgreiðslustofum og annarri þjónustu sem sterkt bæjarfélag þarf. Það vakti furðu mína þegar að ég flutti hingað fyrir rúmum 10 árum að sáralítið af einhverskonar keðjum ofan af landi eru hér. Skyndibitinn sem er í boði er ekki vörumerki frá Bandaríkjunum eða Reykjavík, heldur eru þetta lítil fjölskyldufyrirtæki sem eru rekin af fólki búsettu í Vestmannaeyjum. Sama hvar er litið eru Eyjarnar fullar af svona fyrirtækjum. Fjölskyldufyrirtæki sem duglegt fólk hefur byggt upp í heimabyggð. Eyjafólk er nefnilega ekkert fyrir að láta segja sér hvað á að gera, við gerum hlutina sjálf og tökum ábyrgð á okkar málum, þetta er eins í pólitík. Við viljum fólk sem þarf ekki að leita samþykkis upp á landi. Við viljum fólk sem getur unnið með öðrum.

Við lifum á merkilegum tímum að mörgu leyti. Lífsgæði hafa aldrei verið eins góð og lífslíkur eru háar. Samt þurfum við að láta eins og svo sé ekki. Við tökum upp gamlar stefnur sem hafa fyrir löngu farið úr tísku, hrópum á þá sem ekki eru eins. Hræðslu áróður er að verða aðalsmerki hópa og staðreyndir virðast engu skipta, samt lifun við við góð lífsgæði að mörgu leyti. Við lifum við lífsgæði sem amma og afi hefðu ekki getað látið sig dreyma um og samt eigum við til að kvarta og hræðast.

Lítil samfélög eru merkileg. Við þurfum að umgangast hvort annað af meiri virðingu og tillitssemi en fólk í stærri samfélögum. Við hringjum eitt eða tvö símtöl ef okkur vantar eitthvað og málunum er reddað. Okkur getur auðvitað greint á og ekki verið sammála í einhverjum málum, en við verðum að halda áfram að standa saman í stóru málunum. Samfélagið okkar verður að vera á þann veg að hver einstaklingur skiptir máli og allir gegna hlutverki.

Þetta þurfum við að bæta í bæjarmálunum. Boðleiðir verða að vera stuttar og við verðum að getað afgreitt hlutina hratt og vel. Það þýðir ekki að vera í feluleik með hlutina því að traust er nauðsynlegt ef vel á að takast til. Vestmannaeyingar eru duglegt fólk sem bjargar sér sjálft og ganga í verkin. Eyjalistinn býður upp á þennan hóp, duglegt fólk sem þorir að taka ákvarðanir og standa með þeim.

 

Ágúst Erling Kristjánsson

Höfundur skipar 6. sæti Eyjalistans.

Nýjustu fréttir

Ólíklegt að höfnin opni um helgina
Stærstu viðskiptafréttir í Eyjum á næsta leiti?
Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.