Stormur á Stórhöfða
Vindur PokiIMG 4010
Mikið hvassviðri gengur yfir landið. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Í morgun tók gildi gul viðvörun á sunnanverðu landinu. Klukkan 12 á hádegi tekur svo gildi appelsínugul viðvörun á Suðurlandi og gildir sú viðvörun til klukkan 20.00 í kvöld. Klukkan 11.00 var komið fárviðri á Stórhöfða og mældist stöðugur vindur upp á 35 m/s. Hviður fóru allt upp í 45 m/s. Í Vestmannaeyjabæ mældist á ellefta tímanum vindstyrkur upp á 19 m/s og fór hæst í 28 m/s.

Herjólfur er nú á leið frá Þorlákshöfn til Eyja, en skipið siglir ekki fleiri ferðir í dag sökum veðurs og sjólags. Hér að neðan má sjá óveðrið ganga yfir á gagnvirku korti.

Störhöfði – veðurathuganir

Tími Vindur Mesti vindur / hviða Hiti Uppsöfnuð úrkoma Raka-
stig
Mán 06.04
kl. 11:00
Austan 35 m/s 35 m/s  /  45 m/s 1,8 °C 1 mm / 1 klst 96 %
Mán 06.04
kl. 10:00
Austan 33 m/s 33 m/s  /  41 m/s 1,3 °C 0,8 mm / 1 klst 97 %
Mán 06.04
kl. 09:00
Austan 32 m/s 33 m/s  /  43 m/s 1,4 °C 0,6 mm / 1 klst 95 %
Mán 06.04
kl. 08:00
Austan 28 m/s 30 m/s  /  37 m/s 2,6 °C 0 mm / 1 klst 86 %
Mán 06.04
kl. 07:00
Austan 29 m/s 30 m/s  /  37 m/s 2,6 °C 0 mm / 1 klst 83 %

 

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.