Á fundi B-liðs ÍBV á föstudaginn var ákveðið að Daði Pálsson yrði settur í fjölmiðlabann fram yfir leikinn á laugardaginn. Þá tekur B-liðið á móti HK2 í stórleika vetrarins í Eimskipsbikarnum en leikurinn fer fram klukkan 13:00 í gamla sal íþróttamiðstöðvarinnar, sem er vel við hæfi þegar B-liðið er annars vegar, enda ekkert nema gamlingjar. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á föstudagskvöldið en honum var frestað fram á laugardag, þar sem flestir leikmenn liðsins eru farnir að sofa upp úr átta á kvöldin.