Fyrirhugaðri dagskrá í Eldheimum hefur verið frestað um einn sólarhring. Viðburðurinn, sem áður var auglýstur á föstudagskvöldi, mun nú fara fram laugardaginn 8. nóvember kl. 20:00.
Um er að ræða metnaðarfullt kvöld þar sem Óli Gränz, einn þekktasti gleðigjafi Vestmannaeyja, kynnir nýja bók um sitt viðburðarríka lífshlaup.
Óli fæddist í Vestmannaeyjum árið 1941 og ólst upp í Jómsborg, á Kirkjuvegi 88 og í Breiðabliki. Hann var til sjós á yngri árum og starfaði sem farsæll smiður í Eyjum í yfir 40 ár. Óli hefur lifað fjölbreyttu lífi, eignaðist sjö börn á átta árum og er landsþekktur fyrir húmor sinn og lífsgleði.
Í nýju bókinni Óli Gränz, sem Guðni Einarsson skráði og Bókaútgáfan Hólar gefur út, rekur Óli endurminningar sínar á einlægan og skemmtilegan hátt. „Lofum svo sannarlega skemmtilegu kvöldi með skemmtilegum manni,” segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.
Ný tímasetning: Laugardagur 8. nóvember kl. 20:00.
Staður: Eldheimar.
Frestun: Um einn sólarhring frá fyrri auglýsingu.





















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.