Klæðning Eldheima þolir illa veðráttuna
Eldheimar Vestm Is Skemmdir Cr 1125
Líkt og sjá má er lítið eftir af leiðurunum fyrir klæðninguna. Ljósmyndir/Vestmannaeyjar.is

Klæðning Eldheima er á köflum verulega illa farin og hafa nú verið hafnar aðgerðir til að fjarlægja þá hluta sem verst standa. Frá þessu er greint á vef Vestmannaeyjabæjar.

Bent á áskoranir strax í upphafi

Byggingu Eldheima lauk árið 2014 og var húsið lokaverkefni arkitektsins Margrétar Kristínar Gunnarsdóttur í arkitektanámi hennar í Árósum. Ytra byrði byggingarinnar var klætt með Corten-stáli, sérblönduðu stáli sem myndar yfirborðspatínu (ryðhúð) sem á að verja efnið gegn frekari tæringu.

Við hönnun var þó bent á að Corten-stál gæti reynst viðkvæmt í saltbornu sjávarlofti, líkt og því sem ríkir á Vestmannaeyjum. Saltrok og ágjöf í hvössu veðri geta haft bein áhrif á endingu efnisins.

Áætluð ending Corten-stáls eftir aðstæðum:

  • Beint útsett fyrir sjávarseltu og ágjöf: 5–15 ár

  • Skjólgott, vel loftræst og hreinsað með regnvatni: 15–30 ár

  • Inn í landi með lítið saltmagn í lofti: 30+ ár

Tímabundin vörn sett upp

Klæðningin er verst farin á norður- og vesturhliðum hússins, þar sem álagið er mest. Skemmdir hlutar hafa verið fjarlægðir og krossviður settur upp til bráðabirgða yfir veturinn. Í framhaldinu verður unnið að varanlegum úrbótum, sem ætlað er að tryggja öryggi og ásýnd byggingarinnar til framtíðar.

Unnið er að því að fjarlægja skemmda Corten-klæðningu á Eldheimum. Krossviður hefur verið settur upp tímabundið á meðan varanleg lausn er undirbúin. Mynd: Vestmannaeyjabær

Nýjustu fréttir

Gagnrýnir orðræðu stjórnmálamanna
„Nú þurfum við á ykkur að halda“
Tap hjá ÍBV gegn Stjörnunni
Hoppukastalar, pylsur og Arsenal-stemning í Höllinni
Hjónin Rósa og Ágúst deila áhuga á handverki
Eyjakonur sækja Stjörnuna heim í mikilvægum leik
45 nemendur útskrifuðust frá FÍV
Eldri hjón deila 336 milljónum með börnum og barnabörnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.