Dýpkun tefst í Landeyjahöfn - uppfært
lan_alfsn
Álfsnesið fyrir utan Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í stað Landeyjahafnar í dag vegna ófullnægjandi dýpis í síðarnefndu höfninni. Vegagerðin er ósátt með að ekki sé verið að dýpka í dag, en áætlað er að um 20 þúsund rúmmetra þurfi enn að fjarlægja og gæti verkið tekið allt að fjóra daga við hagstæð skilyrði. Óvissa er um siglingar Herjólfs síðdegis og verður tilkynning gefin út fyrir klukkan 15:00.

Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, lá dýpkunarskipið Álfsnes við bryggju í Vestmannaeyjum í morgun þrátt fyrir að ölduhæð við Landeyjahöfn væri rúmlega einn metri. Skýringin sé áhafnaskipti.

„Okkur skilst að þetta sé vegna áhafnaskipta. Vegagerðin er ósátt við það hvernig að þessu er staðið,“ segir Pétur í svari við fyrirspurn Eyjafrétta. Hann bendir á að aðstæður séu ekki sérstaklega hagstæðar um þessar mundir. „Það þarf að dýpka um 20 þúsund rúmmetra og það tæki líklega fjóra daga á flóði – það er smástreymt núna sem hjálpar ekki til.“

Þegar ekki er hægt að sigla til Landeyjahafnar þarf Herjólfur að fara til Þorlákshafnar, sem lengir siglingatímann verulega. Slíkt hefur áhrif á daglegt líf Eyjamanna, tefur og minnkar framboð vöruflutninga auk þess að raska ferðaáætlunum bæði íbúa og fyrirtækja sem treysta á áreiðanlegar ferjusiglingar.

Ekki kemur fram í svari Vegagerðarinnar hversu mikið hefur þegar verið dýpkað né hvert núverandi dýpi er, en ljóst er að framgangur verksins skiptir miklu fyrir samgöngur við Vestmannaeyjar og er það slæmt þegar ekki er hægt að nýta þá veðurglugga sem gefast til dýpkunar.

Uppfært kl. 14.30

Herjólfur mun sigla eina ferð til Landeyjahafnar seinnipartinn í dag þrátt fyrir tafir á dýpkun við höfnina. Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá Herjólfi ohf. Brottför er frá Vestmannaeyjum klukkan 16:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 20:15. Tilkynning um siglingar á morgun verður gefin út fyrir klukkan 06:00 í fyrramálið.

Nýjustu fréttir

Fullfermi á báðum togurum
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast
Fullorðinsfimleikar hjá Rán
Tómas Bent með sigurmark Hearts
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar
Loðnan berst til Eyja
Nær sjötíu manns á þorrablóti Vinnslustöðvarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.