Þann 30. desember hafa félagar Steingríms Jóhannessonar skipulagt mót í knattspyrnu til styrktar honum og fjölskyldu hans. Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, styðja að sjálfsögðu við bakið á þeim og taka þátt í mótinu. Málefnið er gott en því fylgir þó líka einhver alvara. Líkt og Steingrímur gerði á sínum knattspyrnuferli, þá fara Eyverjar í alla leiki til að vinna. Síðastliðna daga hafa Eyverjar því slegið upp æfingabúðum í Ásgarði og haldið þar hópeflisfundi inn á milli strangra æfinga.