Hljómsveitina Silfur þarf varla að kynna fyrir Eyjamönnum en sveitin hefur spilað reglulega fyrir gesti skemmtistaðarins Lundans. Sveitin hefur nú sent frá sér sinn fyrsta geisladisk en diskurinn fékk nafnið Ekkert vesen. Á honum má finna 11 íslensk lög, þar af tvö þekkt lög sem bandið tók upp á sína arma. Það er Grýlulagið Valur og jarðaberjamaukið hans, sem flestir þekkja kannski sem Hvað er að ske, og gamli Flowers slagarinn Slappaðu af.