Eftir hverja umferð er lesendum Vísis.is boðið að kjósa fallegasta mark umferðarinnar. Alls er hægt að kjósa um fimm mörk en það vekur furðu að mark Aaron Spear skuli ekki komast á listann. Spear skoraði beint úr hornspyrnu í leiknum gegn Fylki, af um 35 metra færi og færin gerast varla mikið erfiðari enda fullur vítateigur af leikmönnum og varla hægt að finna þrengra færi. Spear þrumaði boltanum samt í stöngina og inn. Ekki nógu gott að mati ritstjórnar Vísis.