Heildar gjaldtakan hækki frá fyrstu útgáfu frumvarpsins
Varðandi gjaldtökuna segir Einar að hún komi öll í einu og virðist vera jafn hjá ef ekki hærri á milli fyrstu útreikninga frumvarpsins fyrir atvinnulífið í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Nú þegar frumvarp um veiðigjald hefur verið afgreitt úr nefnd með litlum breytingum, virðist vera að þær breytingar sem voru gerðar snúi aðallega að því að lækka gjöld á minni útgerðir auk þess að viðmið í makríl fer úr 100% í 80% af makrílverði í Noregi. Eyjafréttir leituðu viðbragða stjórnarformanns Ísfélagsins, Einars Sigurðssonar vegna þessa.

„Mér sýnist ekkert þarna hafa breyst raunverulega. Frítekjumörk eru hækkuð sem kemur sér vel fyrir minni aðila og strandveiði. Í raun virðist heildar gjaldtakan hækka frá fyrstu útgáfu frumvarpsins eftir að réttari tölur komu fram. Eftir sem áður stendur það að miða við 80% í makríl í stað 100% er bara út í loftið þegar atvinnuveganefnd var komin með gögn og skýrslur sem sýndu verðmuninn á íslenskum makríl og norskum. Staðreyndin er sú íslenskum makríl sem landað er í Noregi, hefur verið seldur á u.þ.b. helming af verði þess norska. Þetta liggur fyrir en eins og áður er ekkert tekið tillit til gagna,” segir hann.

Suðurkjördæmi og Norðaustur sitja eftir

Varðandi gjaldtökuna segir Einar að hún komi öll í einu og virðist vera jafn hjá ef ekki hærri á milli fyrstu útreikninga frumvarpsins fyrir atvinnulífið í Vestmannaeyjum.

„Það gefur augaleið að slík hækkun mun að sjálfsögðu hafa mikil áhrif. Ég var auðvitað að vonast til þess að hægt væri að treysta því að vinnubrögð yrðu bætt og þetta yrði gert á lengri tíma. Þannig höfðu einstaka stjórnmálamenn talað. Varðandi gögn málsins er mjög sérstakt að um að leið og skatturinn hafði reiknað ákveður nefndin að slíta fundum og setja málið í aðra umræðu. Fulltrúar skattsins voru ekki kallaðir fyrir nefndina og enn og aftur er ekki hægt að fá gögnin sem liggja til grundvallar afhent. Hvernig geta þingmenn eða aðrir tekið afstöðu um málið þegar þeir fá ekki nauðsynlegar upplýsingar.”

Einar svarar því þannig hvort tekið hafi verið tekið tillit til þeirra sjónarmiða sem komu frá hagsmunaaðilum eða komu fram á opnum fundi Eyjafrétta um veiðigjaldið, „nei varla, staðan var löguð aðeins í Norðvesturkjördæmi en Suðurkjördæmi og Norðaustur sitja eftir.

Einar Sig Cr
Einar Sigurðsson (t.h.) svarar spurningu úr sal á fundinum. Við hlið hans er Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: ÓPF

Nýjustu fréttir

Afmælishátíð Landhelgisgæslunnar í Eyjum frestað
Litla-Hraun jafnað við jörðu
Segja mismunun felast í reglum um vinnuskólann
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland 
Terra fær ekki samþykktar breytingar á gjaldskrá
ÍBV og FH skiptu með sér stigunum
Stærstu viðskiptafréttir í sögu Vestmannaeyja
Pétur Bjarna, Eyjamaður og sjávarútvegsfræðingur

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.