Eyjamenn töpuðu fjórða leik sínum í 2. riðli Lengjubikarsins í dag þegar þeir töpuðu 1:2 fyrir 1. deildarliði KA. Gengi Eyjamanna í æfingaleikjum hefur verið frekar slakt, liðið vann þrjá leiki af sjö en allir þrír sigurleikirnir hafa verið gegn neðrideildarliðum. Þá vann ÍBV aðeins einn leik af þremur í Fótbolta.net mótinu og tapaði fyrir Víking frá Ólafsvík á Spáni á dögunum.